Verkefnin okkar geta verið flókin en grunnatriðin eru einföld:
ÞJÓNUSTA
Við höfum gert þjónustu að lykilorði í öllu okkar starfi - þess vegna hefur HugiAX vegnað vel. Við leggjum metnað okkar í að styðja við bakið á viðskiptavinum okkar. Það gildir um allt frá þróun lausna yfir í daglegt viðhald.
Hér eru nokkur atriði sem endurspegla víðtæka þjónustuhugsun HugarAX:
Símaþjónusta - Þjónustuborðið okkar er opið frá kl. 9 til 17 virka daga, sími 545 1000. Þar reynum við að leysa vandamál þitt og útvega þér þá aðstoð sem þú þarfnast. Ef ekki tekst að leysa vandann í gegnum síma bjóðum við upp á þjónustu á staðnum eða að taka tölvuna þína í gegnum netið með fjartengingu.
Rafrænar þjónustubeiðnir - Viðskiptavinir geta sent þjónustubeiðnir í tölvupósti og einnig aðstoðum við viðskiptavini í gegnum fjartengingar, sjá hér til vinstri, Aðstoð yfir vefinn. Almennum þjónustubeiðnunum er svarað innan tveggja virkra daga. Ef þjónusta óskast fyrr þá vinsamlega hafðu samband í síma 545 1000.
Þjónustuvefir - Aðgangur að þjónustuvef er innifalinn í þjónustusamningi. Á þjónustuvefjum eru námskeið, spurt og svarað (SOS) upplýsingagrunnar og ýmiss konar ítarefni og handbækur.
Námskeið - Við bjóðum upp á regluleg námskeið í notkun kerfanna okkar. Við leggjum einnig mikið upp úr því að fræða okkar viðskiptavini um efni sem tengist rekstri og bókhaldi fyrirtækja í gegnum námskeið, heimasíðu okkar og fréttabréf.
Lesa meira um námskeið HugarAx.
Ráðgjöf - Ráðgjafar HugarAx sinna ráðgjöf til viðskiptavina um hugbúnað, verkferla og annað sem tengist upplýsingatæknimálum fyrirtækja. Ráðgjafar okkar starfa með það að leiðarljósi að hvert og eitt fyrirtæki er einstakt og þeir búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu sem miðast við allt frá einyrkjanum yfir í stórfyrirtækið.
Lesa meira um ráðgjöf HugarAx .
Til að fá frekari upplýsingar um þjónustu Advania er hægt að hafa samband í síma 545 1000 eða senda tölvupóst.
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur