|
Kristján Elvar Guðlaugsson |
Snorri Árnason |
Frammistöðustjórnun og viðskiptagreind hafa sjaldan eða aldrei verið mikilvægari og til að mæta auknum kröfum um árangur hefur Ölgerðin valið að nota stjórnendalausnir HugarAx.
„Við gerum kröfur til okkar og viljum að gögnin sem við notum til að mæta þeim kröfum séu í lagi. Við viljum fá að vita allt, helst í rauntíma, og erum mjög smámunasamir hvað það varðar. Við viljum meðal annars hafa upplýsingar um tekjur og framleiðslu á takteinunum, því við teljum það hjálpa okkur við reksturinn. Án stjórntækja og stjórnendalausna værum við eins og stefnulaust skip úti á rúmsjó,” segir Kristján Elvar Guðlaugsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Ölgerðarinnar.
Núverandi efnahagsástand hefur áhrif á öll fyrirtæki landsins og er Ölgerðin engin undantekning. Mestu máli skiptir að bregðast hratt og örugglega við breyttum aðstæðum svo þær hafi sem minnst óþægindi í för með sér. Með góðu aðgengi að upplýsingum og öflugu og hröðu upplýsingaflæði er auðveldara að takast á við verkefnin. „Miklu máli skiptir að vita hvað er að gerast öllum stundum svo að ekkert komi á óvart. Þannig getum við til dæmis gert söluáætlun langt fram í tímann og byggt hana á árstíðabundinni sölusveiflu, eins og til dæmis með Maltið fyrir jólin. Við höfum þurft að bregðast við núverandi aðstæðum í efnahagskerfinu með því meðal annars að minnka birgðir, lækka kostnað og auka innheimtu. Í þeirri vinnu eru góð stjórnendatæki algert lykilatriði. Í allri þessari vinnu gengur samstarfið við HugAx mjög vel og þar er þjónustan í stjórnendalausnum alltaf til fyrirmyndar.”
Ölgerðin innleiddi OLAP hugbúnað þegar Danól sameinaðist Ölgerðinni í fyrra, en Danól hafði notað kerfið í nokkur ár. „Við notum kerfið mjög mikið og viljum nýta það enn frekar. Við erum til dæmis að fara í nýtt vöruhús og á teikniborðinu er að búa til ýmsar greiningatengingar fyrir viðskiptavini, þar sem við getum séð arðsemi viðskiptavina og tækja. Ég efast um að við séum hálfnaðir með að nýta alla möguleikana sem kerfið býður upp á,”
segir Kristján Elvar.
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur náð ótrúlegum árangri frá því að fyrirtækið var stofnað í Reykjavík árið 1997. Netleikurinn EVE Online, sem CCP framleiðir, hefur náð miklum vinsældum og ríflega 300.000 manns um heim allan spila hann á hverjum degi. CCP valdi stjórnendalausnir frá IBM Cognos sem eitt af tækjunum til að ná árangri.
„Ein helsta ástæða þess að CCP valdi Cognos er sú að það er leiðandi á markaði og aðrar stjórnendalausnir á markaði eru ekki sambærilegar. Allt gagnaumhverfi okkar batnaði þegar við tókum upp Cognos, þar sem það hvetur til gagnasöfnunar á skipulagðan hátt. Við notum Cognos einkum við kostnaðargreiningu, kostnaðaráætlanir og starfsmannahald, en það síðastnefnda var ekki fyrirséð og má því segja að það hafi verið jaðarárangur af uppsetningunni að það nýtist starfsmannahaldinu vel. Auk þess er markaðsdeildin að nota Cognos í ríkari mæli. Cognos er mjög öflugt kerfi sem hefur reynst vel og er góð blanda af stöðugleika og sveigjanleika.“
Snorri segir flesta stjórnendur CCP reiða sig á Cognos og sér ávinning af innleiðingu viðskiptagreindar Cognos á mörgum sviðum.
„Nánast allar fjárhagsupplýsingar stjórnenda koma frá Cognos BI, sem og allar rekstraráætlanir. Cognos og skýrslur þess eru nauðsynlegar við öll uppgjör og gerð ársreikninga. Cognos skilar aukinni kostnaðarvitund millistjórnenda og leiðir því til sparnaðar auk þess að efla „bottoms up“ áætlanagerð. Aðgengi að gögnum hefur gerbreyst, sér í lagi að starfsmannaupplýsingum. Áætlanagerð hefur gjörbreyst til hins betra eftir að við tókum upp Cognos þar sem launa-, tekju- og kostnaðarlíkön mynda öflugan ramma sem unnið er eftir.“
„Ég er ánægður með hversu mikil aðlögunarhæfni Cognos virðist vera, bæði vegna þess hversu vel gengur að laga skýrslur að mismunandi notendum og tengja mismunandi gögn saman inn í vöruhús gagna. Einnig gekk vel að móta Cognos Planning að fyrirtækinu og rekstri þess. Ég sé enn frekari möguleika á að víkka notkun og möguleikarnir virðast óþrjótandi.“
CCP hefur vaxið ört síðustu ár og farið frá því að vera meðalstórt íslenskt fyrirtæki yfir í alþjóðlegt fyrirtæki. Því fylgdi aukið umfang auk þess sem fyrirtækið tók upp nýja reikningsskilastaðla.
„Við upphaf heimskreppunnar 2008 varð fyrirtækið að bregðast skjótt við breyttum aðstæðum, bæði gjaldeyrishöftum og aðgengi að fjármögnun, þar sem Cognos gegndi lykilhlutverki við bæði áætlunar- og skýrslugerð.
„Þegar Cognos-innleiðingin hófst hjá CCP reyndist mikil þörf á að endurskipuleggja og samhæfa mikið af innri kerfum fyrirtækisins, jafnt starfsmannaskráningu, kostnaðar- og verkbókhald sem og skipulag og skipurit. Þetta hefur verið strangt ferli en nú er fyrirtækið að uppskera eins og til var sáð. Í þeirri vinnu gekk samstarfið við HugAx mjög vel, við höfum þurft að glíma í sameiningu við mörg krefjandi verkefni og leyst þau á viðunandi hátt, án stóráfalla.“
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur