HugurAx

Guðmundur Guðmundsson deildarstjóri viðskiptadeildar, RARIK

Kröfurnar knýja þróunina áfram


Rarik hefur um árabil notað sænsk orkuviðskiptakerfi sem einu nafni kallast Lettera. Kerfin hafa verið löguð að íslenskum aðstæðum og hafa starfsmenn HugarAx haft það verkefni með höndum í náinni samvinnu við starfsmenn RARIK sem og almenna þjónustu við kerfin.
 
Guðmundur Guðmundsson er deildarstjóri viðskiptadeildar RARIK og hefur starfað hjá fyrirtækinu í 33 ár. Hann hefur unnið með Lettera-kerfin frá upphafi og átt í nánu samstarfi við HugAx.
 
„Þó að Lettera hafi verið hannað fyrir markaðslausnir var einkaleyfisumhverfi við lýði fyrstu árin eftir að við tókum það í notkun. Það var gríðarleg bylting fyrir raforkugeirann að aðlagast markaðsvæðingunni og geysilegt átak í öllu er laut að raforkuviðskiptum. Því má segja að við höfum tekið kerfið upp tvisvar, því markaðsumhverfið kallaði á mikla aðlögun á öllu kerfinu. Vinnubrögð og verklag breyttust og hlutir eins og niðurgreiðsla og mismunandi virðisaukaskattur juku flækjurnar. Því er ekki hægt að segja að kerfið hafi fallið vel að íslenskum aðstæðum, en við völdum frekar að aðlaga kerfi en að skrifa nýjan hugbúnað frá grunni,“ segir Guðmundur. Hann bætir við að ferlið hafi verið tímafrekt en geysileg vinnutörn sé nú að baki, næsta framtíð verði á rólegri nótum.

„Í svona ati verður samvinna náin, annars næst ekki árangur. RARIK hefur líkað vel samvinnan við HugAx, enda teljum við að nú séum við með ágætan rekstur á þessu sviði. Við höfum lært mikið á þessu ferli, en markaðsvæðing raforkugeirans var mjög flókið mál og reyndi mikið á starfsmenn orkufyrirtækjanna, sem stofnuðu sérstakt fyrirtæki, Netorku, vegna þessara breytinga.”
 

 En hefur sú mikla vinna skilað tilætluðum árangri?
 
„Auðvitað þarf alltaf að vera á tánum og breyta einhverju og bæta, menn mega ekki alveg staðna og nýjar kröfur koma sífellt fram. Samstarfið við HugAx um rekstur og áframhaldandi þróun á hugbúnaðinum hefur verið ágætt. Þetta er sameiginlegt verkefni, en auðvitað er aldrei hægt eða verjandi að gera allt sem hugurinn girnist – það er gömul saga og ný.“ Lettera-kerfin ná yfir mjög víðfeðmt svið; þau eru notuð við gerð orkureikninga, vinnslu mæligagna, söluaðilaskipti og fleira. Meðal annars er hluti af Lettera-kerfunum vefviðmót sem RARIK og Orkusalan byggja þjónustuvefi sína á.

RARIK og Orkusalan leggja aukna áherslu á þjónustu við viðskiptavini sína í gegnum vefinn og nú geta viðskiptavinir til dæmis nálgast orkureikninga á þjónustuvefnum, skilað inn álestrum og fleira.
„Vefviðmótið er komið í það horf að ágætlega má við una, en það hefur kostað töluvert mikla aðlögun. Íslendingar virðast miklu kröfuharðari en Svíar í þessu efni, sem og reyndar ýmsu öðru er svona hugbúnað varðar. Þróunin hjá okkur verður á þann veginn að Orkusalan og RARIK munu þróa hvort sinn vef. Trúlega mun vefur Orkusölunnar þróast meira og hraðar, enda er það fyrirtæki í samkeppnisrekstri og vefurinn tæki í samkeppninni.“
 

Guðmundur talar um að bæði notendur kerfisins og viðskiptavinir geri miklar kröfur um hvernig hugbúnaðurinn virkar. Er það af hinu góða?
„Já, það eru kröfurnar sem knýja þróunina áfram, en vandinn er að halda þróunarkostnaði innan viðráðanlegra marka,“ segir Guðmundur.

Viðburðir

 

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR