HugurAx

Vitnisburður viðskiptavina

Kristján

Sigurjón Stefánsson
Sláturfélag Suðurlands
„Kerfið aðlagast okkur”

Stefán

Stefán Bjarnason
Fjármálastjóri, Stilling
„Traust kerfi”

KERFIÐ AÐLAGAST OKKUR, Sigurjón Stefánsson, Sláturfélag Suðurlands

Alvís er sveigjanlegt viðskiptakerfi sem byggir á fullkomnustu tækni sem völ er á í Power System umhverfinu frá IBM en umhverfið er þekkt fyrir mikinn stöðugleika og að vera hagkvæmt í rekstri. Sigurjón Stefánsson hjá tölvudeild Sláturfélags Suðurlands tekur undir það og segir kerfið vera sérstaklega auðvelt í rekstri. Hann er í hópi fjölda ánægðra viðskiptavina sem nota Alvís.

„Helstu kostir kerfisins eru tvímælalaust hversu auðvelt það er í rekstri og notkun. Kerfið er mjög stöðugt og auðvelt er að setja upp umhverfi fyrir hvern starfsmann, auk þess sem góð samræming er í öllum aðgerðum,“ segir Sigurjón Stefánsson. Hugbúnaðurinn er byggður upp í einingum, sem valdar eru saman eftir þörfum notanda. Helstur einingarnar Alvís innhalda meðal annars fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, sölukerfi, birgðakerfi og erlent viðskiptabókhald svo fátt eitt sé talið. „Ég er sérstaklega hrifinn af því hversu öruggt kerfið er og hversu fljótlegt er að gera þær breytingar sem óskað er eftir.“

„Við höfum notað Alvís frá árinu 1995 og á þessum árum hefur kerfið þróast mikið. Í samstarfi við HugAx hafa allar okkar beiðnir um viðbætur og breytingar verið unnar fljótt og vel, sem þýðir að í dag erum við með öflugt upplýsingakerfi sem þjónar okkar þörfum vel, ásamt því að vera mjög hagkvæmt í rekstri. Samstarfið við HugAx hefur gengið mjög vel og allt verið unnið af miklum metnaði. Þá er vert að minnast á að frumkvæði og fagmennska, ásamt persónulegu viðmóti, er mikils virði.“ Alvískerfið er í stöðugri þróun og var meðal annars hafin þróun á Windows-viðmóti fyrir nokkrum árum sem vinnur á sama gagnagrunni og eldra viðmótið, og býður meðal annars upp á möguleika á tengingum við Microsoft Office.

„Það er margt nýtt í Alvís, einsog tenging við vöruhúsakerfi hjá Eimskip, og nú er unnið að tengingu við Manhattan-vöruhúsakerfið. Með notkun hugbúnaðarins Strategi og Alvís rekum við Viðskiptavef SS þar sem okkar viðskiptavinir geta nálgast upplýsingar um sín viðskipti og fleira,“ segir Sigurjón. „Við höfum þróað Alvískerfið að okkar þörfum, frekar en að aðlagast kerfinu.“

 

TRAUST KERFI, Stefán Bjarnason fjármálastjóri, Stilling

Stilling hf. var stofnuð árið 1960 sem sérhæft hemlaverkstæði en rekur nú sex öflugar verslanir með vara- og aukahluti í bíla og er eitt elsta varahlutafyrirtækið á markaðnum. Fyrirtækið hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu. Stilling hefur notað sveigjanlega viðskiptakerfið frá Alvís frá árinu 1984, en kerfið er þekkt fyrir stöðugleika og hagkvæmni í rekstri

„Helsti kostur Alvís er hversu öruggt það er. Við höfum notað Alvís í mörg ár og aldrei hefur neitt komið upp á sem hefur komið í veg fyrir að hægt sé að nota kerfið. Það hefur alltaf þjónað okkur vel,“ segir Stefán Bjarnason, fjármálastjóri Stillingar,  og tekur það fram að vissulega skoði hann reglulega önnur kerfi en ekkert þeirra hafi staðist samanburð við Alvís.

Alvís hugbúnaðurinn er byggður upp í einingum, sem valdar eru saman eftir þörfum notenda. Einingarnar skapa samofna heild sem byggist á samræmdum gagnagrunni.

„Við notum allar einingar Alvís í okkar rekstri, meðal annars sem innkaupa- og sölukerfi, og við birgða- og fjárhagsbókhald, og það hefur alltaf gengið mjög vel. Kerfið hefur að sjálfsögðu verið sniðið að okkar þörfum og um þessar mundir er verið að vinna í samstarfi við HugAx að nýjung sem felur í sér skannalausnir. Samstarfið við HugAx gengur mjög vel og hefur alltaf gert það. Lungann af tímanum hafa sömu aðilarnir þjónustað okkur, sem skiptir miklu máli í öllum samskiptum.“

Viðburðir

 

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR