|
Dagný Gísladóttir |
Sigþrúður Jónasdóttir |
Reykjanesbær setti í loftið endurbættan vef í júní á síðasta ári og notaði Vefþór til verksins. Dagný Gísladóttir er kynningarstjóri Reykjanesbæjar og hafði umsjón með verkefninu.
„Við fórum í þónokkra vinnu við endurskoðun á vefnum okkar þar sem við
vildum gera hann gagnvirkari, bæta leitina og gera margmiðlunarefni aðgengilegra,
svo sem útsendingar frá fundum og kynningar á bænum. Mikil vinna
fylgir slíku verkefni og var vefstefnan okkar uppfærð í samvinnu við Sjá ehf.
HugurAx sýndi okkur einstaka þolinmæði og skilning meðan á þessari vinnu
stóð. Fylgja þarf mörgum smáatriðum eftir í svona verkefni svo ekki skapist
glundroði og var vandað til verka í alla staði,“ segir Dagný Gísladóttir,
kynningarstjóri Reykjanesbæjar.
„Við höfum notað Vefþór í átta ár og samstarfið við HugAx hefur ætíð gengið
vel. Vefþór hefur alltaf verið traustur hugbúnaður, einfaldur og þægilegur í
notkun. Við notum hann bæði fyrir vefinn okkar og undirvefi, en flest öll söfnin
okkar nota Vefþór. Vegna þess hversu einfaldur, léttur og stöðugur hann er í
notkun hefur okkur gengið vel að kenna á hann og það hefur ýmsa kosti í för
með sér að allir noti sama kerfið. Hjá okkur setja mjög margir efni inn á vefinn
og það væri mun erfiðara að hafa hann fjölbreyttan ef það gengi ekki greiðlega
fyrir sig.”
Hún segir Reykjanesbæ hafa kosið Vefþór því hann bjóði upp á mikla möguleika
á upplýsingamiðlun. „Gott vefumsjónarsvæði þarf að þróast hratt og taka
inn nýjungar en á sama tíma verður það að vera nokkuð einfalt í notkun og
stöðugt, og það á við um Vefþór” segir Dagný.
„Vefþór uppfyllti allar væntingar sem við gerðum til kerfisins þegar við tókum það í notkun fyrir rúmu ári. Hann er einfaldur í notkun og nýtist okkur vel, enda er mjög auðvelt að læra á kerfið.“
„Við tókum vefinn okkar til gagngerrar endurskoðunar fyrir ári síðan og þá var ákveðið að notast við Vefþór. Innleiðingin gekk snurðulaust fyrir sig og skipulag HugarAx var gott og fagmannlegt.“
„Samstarfið var í alla staði til fyrirmyndar. Starfsfólk HugarAx veitti okkur góða hjálp og skýrar leiðbeiningar, auk þess sem þjónustan eftir að uppsetningu lauk var afar góð. Ég var mjög ánægð með samstarfið. Vefur Sameinaða lífeyrissjóðsins er mjög stór og því skiptir miklu máli að hlutirnir gengu hratt og vel fyrir sig.“ „Við notum Innsýn, innri vef Vefþórs, til að miðla nauðsynlegum upplýsingum til starfsfólks. Vefþór reynist okkur einfaldlega afar vel og viljum við nýta hann enn betur í framtíðinni.”
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur