HugurAx

Stjórnendalausnir

Stjórnendalausnir HugarAx

Hraði er eitt af einkennum nútíma viðskipta. Réttar upplýsingar eru nauðsynlegar til þess að geta tekið réttar ákvarðanir. Allir vilja fá upplýsingar hratt og örugglega með lítilli fyrirhöfn, hvort sem það eru starfsmenn, viðskiptavinir, birgjar eða eigendur. Síðast en ekki síst þurfa stjórnendur og aðrir starfsmenn fyrirtækja að hafa greiðan aðgang að upplýsingum við dagleg störf.

Árangursstjórnun
Stjórnendalausnir HugarAx samanstanda af þekkingu, reynslu, hugbúnaði og lausnum sem miða að því að hjálpa fyrirtækjum að gera sér grein fyrir því sem skiptir máli í rekstrinum.
Stjórnendalausnir HugarAx fylgja einföldum hring árangursstjórnunar. Þar eru lykilþættir í rekstri skilgreindir, markmið sett um árangur þeirra og markmiðunum fylgt eftir og mögulegt er að bregðast við á réttan hátt og á réttum tíma með frekari greiningu á áhrifaþáttum í rekstrarumhverfinu.

Stjórnendalausnir HugarAx vinna með hugbúnaði frá IBM Cognos og Microsoft. HugurAx er vottaður samstarfsaðili beggja fyrirtækja.

Ráðgjöf
HugurAx hefur tuttugu ára reynslu af greiningu og innleiðingu stjórnendalausna fyrir stór og smá fyrirtæki, allt frá vali á búnaði og greiningu lausna til innleiðingar sem og verkstýringar allra verkþátta. HugurAx sem og ráðgjafar þess hafa gengið í gegnum strangt vottunarferli þar sem þekking, reynsla og aðbúnaður hefur allur verið vottaður og starfsmenn undirgengist próf. Með nánu samstarfi og vottun frá IBM og Microsoft opna þessi fyrirtæki ráðgjöfum okkar aðgengi að visku- og lausnabrunnum sínum til notkunar í starfi.

Nánari upplýsingar um stjórnendalausnir HugarAx veitir söludeild HugarAx síma 545 1000 eða í gegnum tölvupóst.

Stjórnendalausnir - einblöðungur

 

 

Viðburðir

 

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR