HugurAx

Viðskiptalausnir

Á hverjum degi reiða þúsundir íslenskra fyrirtækja sig á viðskiptalausnir frá HugAx.

Við leggjum mikinn metnað í að bjóða upp á viðskiptalausnir sem hentar starfsskilyrðum íslenskra fyrirtækja, af öllum stærðum og gerðum. Góður árangur viðskiptavina er okkar markmið.

 

 

Microsoft Dynamics AX viðskiptalausnin

Microsoft Dynamics AX

Microsoft Dynamics AX  er viðskiptalausn fyrir fyrirtæki þegar kemur að viðskipta- og upplýsingakerfum. Kerfið býr að einföldu og notendavænu viðmóti sem  opnar notendum leið að betri upplýsingum þar sem allt er á einum stað.

Nánar um Microsoft Dynamics AX

TOK bókhald

TOK

TOK er algengasta bókhaldskerfið hjá smærri fyrirtækjum á Íslandi. Þúsundir fyrirtækja um land allt nota TOK daglega til að halda utan um bókhaldið sitt. TOK bókhaldskerfin eru til í mismunandi stærðum og einingum og getur kerfið stækkað með þér og þínu fyrirtæki. Sveigjanleiki kerfisins gerir það að verkum að TOK kerfin geta byrjað í smærri útgáfum en þróast og vaxið með fyrirtækinu og aðlagað sig að breyttum aðstæðum fyrirtækisins.

Nánar um TOK bókhaldskerfið

TOK plús

TOK plús

TOK plús er alhliða viðskiptakerfi sem meðal annars heldur utan um bókhald, innkaup, birgðir, verk og sölu. Viðskiptahugbúnaðurinn TOK plús var hannaður með þarfir lítilla og meðalstórra fyrirtækja í huga og er í notkun árum saman hjá fjölmörgum viðskiptavinum. Með tilkomu nýrra kynslóða af viðskiptahugbúnaði hefur verið dregið úr allri nýþróun á TOK plús en mun HugurAx áfram leggja kapp á að sinna allri þjónustu og ráðgjöf við lausnina eins og hefur verið.

Nánari upplýsingar veitir söludeild HugarAx.

Alvís

Alvís

Alvís er sveigjanlegt viðskiptakerfi sem auðvelt er að laga að þörfum einstakra fyrirtækja. Alvís byggir á fullkomnustu tækni sem völ er á í Power System i umhverfinu frá IBM en umhverfið er þekkt fyrir mikinn stöðugleika og að vera hagkvæmt í rekstri.
Hugbúnaðurinn er byggður upp í einingum, sem valdar eru saman eftir þörfum notenda.

Nánar um Alvís

Microsoft XAL

Microsoft XAL

HugurAx hefur veitt ráðgjöf og þjónustu við XAL viðskiptavini síðan 1991 og býr starfsfólk fyrirtækisins því að áratuga reynslu af kerfinu. Það sem einkennir Microsoft XAL öðru fremur er fjölbreytileiki þeirra lausna sem settar hafa verið upp hjá íslenskum fyrirtækjum. Góð reynsla notenda af Microsoft XAL eru bestu meðmælin sem hægt er að fá og þrátt fyrir að Microsoft XAL sé ekki lengur í sölu hjá HugAx, höldum við áfram að leggja metnað okkar við að þjónusta notendur kerfisins, svo lengi sem þess er þörf.

Nánari upplýsingar veitir söludeild HugarAx.

Viðburðir

 

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR