Proact er faglegt og framsækið fyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir fyrir hársnyrtistofur. Proact býður upp á óendanlega möguleika af hársnyrtivörum fyrir fagfólk og mikið úrval af húsgögnum, vörum fyrir skósmiði og fylgihlutum fyrir skó. Meðal þekktra vörumerkja hjá Proact eru Matrix, L’Oréal Professionnel, Kérastase og Joico.
Proact leggur metnað í að vera sterkt og framsækið fyrirtæki í góðum tengslum við viðskiptavini sína og hefur valið Ópusallt í lið með sér til að ná settum markmiðum. Proact hefur notað Ópusallt frá árinu 1987. Örn Viðar Skúlason er framkvæmdastjóri Proact. „Við stækkuðum nýlega þegar við sameinuðumst minna fyrirtæki. Við ákváðum að yfirfæra rekstur þess í Ópusallt, þrátt fyrir að því hafi fylgt annað kerfi. Reynsla okkar er sérstaklega góð af Ópusallt, enda er það þægilegt og notendavænt kerfi sem hefur hentað okkar rekstri mjög vel,“ segir Örn Viðar.
„Við höfum verið mjög ánægð með Ópusallt og nýlega uppfærðum við í Windows-útgáfuna, sem var mjög þörf og góð breyting og bauð upp á nútímalegra umhverfi. Ég er mjög hrifinn af því hversu auðvelt er að flytja gögn úr kerfinu og vinna með þau annars staðar eins og til dæmis í Excel. Ópusallt leikur lykilhlutverk í því sem við erum að fást við. Margar pantanir eru afgreiddar á degi hverjum til fjölda viðskiptavina og við þurfum að vera viðbúin þegar viðskiptavinurinn leitar til okkar með spurningar. Það er afar mikilvægt að hafa gott kerfi eins og Ópusallt til að halda utan um allt saman. Með allan þann fjölda viðskiptavina sem við erum með skiptir máli að allt gangi vel fyrir sig og þar hefur Ópusallt komið að góðu gagni.“
„Samstarfið við HugAx er sérstaklega gott og eigum við þar í samskiptum við afar þægilega aðila. Við erum almennt ánægð með þjónustuna hjá HugAx og er ætíð tekið hratt og örugglega á öllum málum. Vegna þess hversu reynsla okkar af samstarfi við HugAx er góð ákváðum við að halda okkur við Ópusallt þegar sú spurning kom upp hvort við ættum að skipta yfir í annað kerfi. Ópusallt hefur þjónað okkur vel, uppfyllir öll okkar skilyrði og er afar þægilegt og gott kerfi.“
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur