Kjörís fagnar fjörutíu ára afmæli á þessu ári, en fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá því að það hóf starfsemi sína í mars 1969 í 250 fermetra húsnæði í Hveragerði. Fyrirtækið er enn á sama stað en húsnæðið er nú tæplega 4.000 fermetrar og vörurnar eru geymdar í um fimmtán vöruhúsum um allt land. Sum vöruhúsanna eru jafnvel á fjórum hjólum því hver ísbíll er lager. Gott skipulag og nákvæmni þarf til að halda utan um þessa gríðarlegu starfsemi. Þar hefur HugurAx lagt hönd á plóg og þegar Kjörís tók Axapta-vörukerfið í notkun olli það straumhvörfum. Anna Kristín Kjartansdóttir er skrifstofustjóri hjá Kjörís og hefur yfirumsjón með innkaupum.
„Ég er alsæl með kerfið, en með upptöku á Axapta fengum við nánari upplýsingar um birgðastöðu okkar og lager. Við erum með fjölmörg vöruhús víða um landið og Axapta auðveldar allt utanumhald til muna. Til dæmis er lager í hverjum ísbíl því ísinn er seldur beint úr bílunum. Einna mest munar um hvernig við höldum utan um hráefnið, sem er stór hluti af vörum okkar. Við fundum fyrir stórkostlegri breytingu þar á þegar við hófum að nota Axapta. Nú erum við með fullkomna yfirsýn, við getum greint þörfina betur og pantað inn með fyrirvara. Áður fyrr gat það til dæmis átt sér stað að eitthvert bragðefni kláraðist skyndilega og þá gat tekið margar vikur að fá það til landsins. Nú lætur kerfið okkur vita í tæka tíð ef panta þarf eitthvert hráefni og það er alltaf við höndina þegar á þarf að halda. Kerfið veit hversu mikið er til inni á lager, hvenær líklegt er að það klárist og hversu langan tíma þarf til að panta og koma vöru til landsins. Lageröryggi hefur aukist svo um munar, sem er stórkostlegt. Áætlanakerfið hefur meðal annars með þessum hætti skilað miklum árangri í innkaupastýringu.“
Anna Kristín bætir því glettnislega við að hún myndi þiggja að hafa Axapta-kerfið heima hjá sér. „Í stað þess að fara heim og gera birgðatalningu og fara svo út í búð gæti maður haft nýjustu tölur við höndina og farið þá í búð á leiðinni úr vinnunni.“
En hvað með framlegðina?
„Við fylgjumst vel með framlegðarútreikningum og grípum í taumana ef framlegðin er farin fyrir bí, sérstaklega á tímum sem þessum þegar allt hækkar og hækkar og þörfin er mikil á því að fylgjast vel með framlegð. Með Axapta getum við treyst vel á að allt gangi sem skyldi, sjáum fljótt ef skráð eru óeðlileg innkaup og svo framvegis. Ekki skemmir fyrir að það er auðvelt að nota kerfið og við höfum ekki þurft að fá mikla hjálp frá HugAx, þótt hún standi alltaf til boða. Auðvitað kemur eitthvað upp í hverjum mánuði sem við þurfum að fá aðstoð með, en það eru yfirleitt smámunir.“
Að lokum er ekki hjá því komist að spyrja Önnu Kristínu hver sé uppáhaldsísinn hennar. „Scala er uppáhaldið mitt, mér finnst hann langbestur.“
Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur