HugurAx

Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu

Öflugt kerfi fyrir öflugan rekstur

Atlantsolía uppfærði fyrir rúmi ári úr TOK PLÚS í Dynamics AX sem er framúrskarandi viðskiptalausn sem opnar notendum leið að betri upplýsingum og einfaldar upptöku netviðskipta, en Atlantsolía býður viðskiptavinum sínum meðal annars upp á að fá kvittanir í tölvupósti eftir að hafa tekið eldsneyti á dælustöðvum félagsins. Með upptöku Dynamics AX bættist Atlantsolía í hóp fjölda ánægðra viðskiptavina HugarAx sem reiða sig á Dynamics AX í daglegum rekstri. Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, segir uppfærsluna í Dynamics AX hafa gengið afar vel.Guðrún - Atlantsolía

„Uppfærslan úr TOK PLÚS yfir í Dynamics AX gekk mjög vel og allar tíma- ogkostnaðaráætlanir um verkið stóðust. Við vorum mjög ánægð með þá vinnu í heild sinni. Samstarfið við HugAx gekk mjög vel, og hafa okkar tengiliðir reynst okkur vel. Það skiptir miklu máli að hafa góðan tengilið sem þekkir allar sérlausnir vel og er því fljótur að leysa úr þeim vandamálum sem upp geta komið.“

Atlantsolía hefur vaxið hratt frá því fyrirtækið var stofnað í júní 2002. Í upphafi voru örfáar dælustöðvar á höfuðborgarsvæðinu en þeim fjölgaði hratt og örugglega og er þær nú að finna víða um landið. Til að byggja upp öflugan rekstur þarf öflugar viðskiptalausnir, sem er ein ástæða þess að Atlantsolía kaus Dynamics AX.
„Meginástæða þess að við skiptum úr TOK PLÚS yfir í Dynamics AX er sú að TOK PLÚS hentaði ekki lengur okkar rekstri sem hefur stækkað ört á síðustu árum. Dynamics AX þjónar betur okkar þörfum.Við erum með töluvert af sérsmíðuðum lausnum og kerfið þarf að vinna með öðrum kerfum eins og dælulyklakerfinu.“

Dælulyklakerfið gerir viðskiptavinum kleift að kaupa eldsneyti á auðveldan máta með sérstökum lykli sem er notaður við dælustöðvarnar. Kvittun fyrir kaupunum berst svo viðskiptavininum með tölvupósti, sé þess óskað. „Upplýsingar um sölu berast í Dynamics AX úr dælustýringarkerfinu, sem sér svo um að senda tölvupóstkvittanir til viðskiptavina. Afhendingar beint af olíubílum eru skráðar í handtölvur sem senda svo upplýsingar um sölu í Dynamics AX.“ 

Guðrún Ragna segist vera mjög ánægð með Dynamics AX og þá sérstaklega samþykktar- og skönnunarkerfið. „Reikningar fara ekki lengur á flakk um húsið með tilheyrandi vandkvæðum. Kerfið sparar tíma og utanumhald og einfaldar vinnuferlið bæði hjá bókara og gjaldkera.“

Tengiliður

Elín Lýðsdóttir

elin[hja]hugurax.is

545 1000

Tengdar vörur

Bakvörður

Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.



TOK Laun

Sparar tíma og auðveldar vinnu við launaútreikning, gerð skilagreina og afstemmingar.

HugurAx logo

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

HugurAx
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

HugurAx
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

HugurAx
á Egilsstöðum Tölvupóstur

Staðsetning

HugurAx
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR