„Við innleiddum Bakvörð í apríl 2008 og olli það gríðarlegri byltingu. Starfsemi okkar er dreifð, við erum staðsett á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem borarnir eru í notkun um allt land og erlendis. Áður fyrr var vinnutími bormanna á hverjum bor skráður í sérstakt borkerfi, en vinnutími skrifstofufólks var ekki skráður og á lager var notast við gamla stimpilklukku. Eins og gefur að skilja vorum við spennt að fá kerfi sem gaf okkur yfirsýn yfir vinnutíma allra starfsmanna og öfluga greiningu á honum. Við vissum að með Bakverði fengjum við upplýsingar sem við höfðum ekki áður,” segir Ragnheiður Jónasdóttir, upplýsingastjóri Jarðborana ehf.
Á hverjum bor stendur Bakvörður vaktina sem rafræn stimpilklukka starfsmanna og sendir hann upplýsingarnar yfir netið. Auk þess heldur hann utan um verkskráningar og vaktaskipulag, meðal annars með samskiptum við RimDrill sem er staðlað borkerfi á öllum stærri borum fyrirtækisins. Á hverjum bor er 25 manna áhöfn sem vinnur á vöktum og sér Bakvörður um að halda utan um skráningu á vaktakerfinu. Á hverjum bor og hverri starfsstöð er klukka og eru Jarðboranir með tíu klukkur í notkun sem halda utan um skráningu u.þ.b. 180 starfsmanna.
„Helmingur klukknanna er sífellt á ferðinni því borarnir eru færðir um set á um það bil 35 daga fresti. Borarnir eru beintengdir við skrifstofu og því fáum við upplýsingarnar úr Bakverði reglulega án vandkvæða.”
„Bakvörður hefur reynst okkur ákaflega vel og við höfum fengið allt aðra stjórnun á tíma og greiningu á vinnutíma starfsmanna. Kerfið er auðvelt í notkun og eftir því sem menn læra betur á það ganga hlutirnir enn betur fyrir sig. Bakvörður auðveldar einnig alla launavinnu þar sem við keyrumupplýsingar úr honum inn í launakerfið okkar,” segir Ragnheiður.
Jarðboranir notast einnig við Dynamics AX sem HugurAx þjónustar. „Tímaskráning úr Bakverði er lesin inn í Dynamics AX og á verkin. Þannig er auðvelt að halda utan um heildartímafjölda og kostnað starfsmanna við þau.” Hún sér fyrir sér að notkun á Dynamics AX eigi eftir að aukast í framtíðinni, meðal annars með notkun vefbiðlara þar sem portals verða notaðir til tengingar við innranet fyrirtækisins.
Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur