HugurAx

Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri starfsþróunar hjá Landsvirkjun

UPPFYLLIR SKILYRÐI

„Ég skil ekki hvernig fyrirtæki geta farið í gegnum vottun án þess að vera með svona frábært kerfi eins og HRM mannauðskerfið í Dynamics AX,“segir Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri starfsþróunar hjá Landsvirkjun. „Við erum vottað fyrirtæki og okkur er skylt að halda utan um réttindi, skírteini og menntun starfsmanna og ráða bót á því ef starfsmaður uppfyllir ekki allar kröfur. Með notkun mannauðskerfisins höfum við betri yfirsýn yfir starfsmannahópinn, en við notum það til gloppugreininga og til að halda utan um kröfur um færni. Þar sem allar upplýsingar eru sýnilegar erum við fljótari að bregðast við ef við sjáum að menn uppfylla ekki allar kröfur sem gerðar eru til þeirra í starfi. Upplýsingarnar eru bæði sýnilegar stjórnanda og starfsmönnum.”Ragnheiður - Landsvirkjun

„Kerfið nýtist hinum almenna starfsmanni afar vel. Hann er alltaf með ferilskrána fyrir framan sig ásamt þróunaráætlun. Hann hefur því góða yfirsýn og legg ég mikla áherslu á að starfsmenn nýti sér þátt sem heitir verkreynsla. Starfsmenn geta skráð inn í kerfið reynslu sína, bæði hjá okkur og fyrri starfsreynslu, og það ætti að nýtast þeim ef þeir hverfa til starfa annars staðar. Starfsfólk hér er með langan starfsaldur og því getur það komið að góðum notum að skrá ferilinn jafnóðum sem auðveldar upprifjun á verkum eftir langan feril.”

Innleiðing Dynamics AX hjá Landsvirkjun hófst árið 2007. Fyrirtækið var með annað kerfi en kostirnir við að nota sama kerfi fyrir bókhald, innkaupakerfi, launakerfi, verkbókhald og mannauðskerfi þótti ótvírætt. „Viðmótið er eins í öllum verkefnum, þannig að hver starfsmaður þekkir umhverfið vel. Það er líka allt á íslensku, sem er gríðarlegur kostur. Auk þess styður kerfið vel við ISO 9001 staðalinn sem við vinnum eftir sem gerir öll vinnubrögð vandaðari og markvissari.”

Ragnhildur segir Dynamics AX standast samanburð við önnur kerfi, hún getur hiklaust mælt með því og sér fram á útvíkkaða notkun á kerfinu í framtíðinni.

Tengiliður

Elín Lýðsdóttir

elin[hja]hugurax.is

545 1000

Tengdar vörur

Bakvörður

Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.



TOK Laun

Sparar tíma og auðveldar vinnu við launaútreikning, gerð skilagreina og afstemmingar.

 

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR