HugurAx

Vésteinn Benediktsson, fjármálastjóri Kaffitárs

BETRI STJÓRNUN


Í lok síðasta árs innleiddi Kaffitár nýjustu útgáfuna af Dynamics AX 2009 sem er flaggskip Microsoft í viðskiptalausnum. Með því var stigið mikilvægt skref til aukinnar söfnunar og úrvinnslu upplýsinga, en áður notaði fyrirtækið TOK plús og Excel gegndi líka stóru hlutverki. Vésteinn Benediktsson er fjármálastjóri Kaffitárs.Vésteinn - Kaffitár

„Við höfðum hug á að bæta notkun okkar á birgðakerfinu, skrá og vinna upplýsingar sem við höfðum ekki áður til taks, en Dynamics AX gerir okkur það kleift. Áður fyrr notuðum við mikið af Excel skjölum og þótti ljóst að við gætum bætt upplýsingakerfið hjá okkur heilmikið,” segir Vésteinn Benediktsson, fjármálastjóri Kaffitárs.

Með tilkomu Dynamics AX eykst yfirsýn stjórnenda. Verkflæði verður betra þar sem jafnóðum fást upplýsingar um framlegð vörutegunda, vörunotkun, rýrnun innan deilda og þar með afkomuna sjálfa.

„Ferlið hefur gengið vel en kannski hægar en við reiknuðum með. Það tekur tíma að koma birgðakerfinu af stað þar sem færa þarf inn mikið magn af upplýsingum sem við höfðum ekki áður gert. Við erum ef til vill pínulítið óþolinmóð að koma þessu á þann stað sem við ætlum okkur til að geta fullnýtt þetta nýja kerfi. Annars hefur allt gengið mjög vel fyrir sig og hefur kerfið verið aðlagað að okkar þörfum. Öll skipulagning var góð og verkstjórnin prýðileg frá hendi HugarAx. Starfsmenn vilja læra meira á kerfið og nýta það betur.”

Tengiliður

Elín Lýðsdóttir

elin[hja]hugurax.is

545 1000

Tengdar vörur

Bakvörður

Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.



TOK Laun

Sparar tíma og auðveldar vinnu við launaútreikning, gerð skilagreina og afstemmingar.

 

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR