„Fjölskyldan mín keypti Glóey árið 1987 og skömmu seinna tókum við TOK-kerfið í notkun, sem var þá að slíta barnsskónum. Fram að þeim tíma hafði tölvutæknin þegar sett sitt mark á okkur þar sem faðir minn var það framsýnn að hann setti upp tölvu á verkstæði sínu árið 1976,“ segir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri Glóeyjar. „Þar sem TOK-kerfið hefur fylgt okkur lengi er það algerlega sérsniðið að okkar þörfum. Það hefur reynst okkur vel í gegnum árin og það er afar þægilegt að vinna með það. TOK hefur því í langan tíma verið órjúfanlegur hluti af rekstri Glóeyjar.“
Haukur starfar í versluninni þar sem hann notar TOK-kerfið daglega við alla afgreiðslu. „Sölukassinn er tengdur TOK bókhalds- og birgðakerfinu, sem þýðir að bæði fáum við upplýsingar úr TOK og sendum upplýsingar í TOK í lok hvers dags. Með þessum hætti uppfærum við viðskiptamanna- og birgðabókahaldið daglega. Kassatengingunni fylgir því hagræðing og vinnusparnaður er mikill.“
„Lengi vel var TOK í DOS-umhverfinu, en er nú komið í Windows-umhverfi sem er breyting til hins betra og miklir möguleikar á frekari þróun.En ég sé fyrir mér að margt sé hægt að gera í TOK-kerfinu og er boðinn og búinn að leggja mitt af mörkum. Ég læt í mér heyra ef mér finnst að eitthvað megi betur fara og starfsmenn HugarAx hafa ætíð tekið því vel. Ég sé ekki annað en TOK eigi eftir að fylgja okkur lengi og eigi eftir að þróast enn frekar.“
Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur