Hampiðjan er öflugt fyrirtæki á alþjóðlegum markaði og er einn stærsti framleiðandi veiðarfæra í heiminum með starfsemi víða um lönd. Viðskiptahugbúnaður sem ræður við fjölþjóðlegt umhverfi nýtist fyrirtækinu því vel. Hampiðjan hefur notað Axapta-viðskiptahugbúnaðinn frá því í ársbyrjun 2000 með góðum árangri. Fyrstu árin var Axapta eingöngu í notkun hjá Hampiðjunni á Íslandi en síðar hefur það verið tekið í notkun hjá dótturfélögum Hampiðjunnar í Bandaríkjunum, Litháen, Danmörku og Noregi. Mestur hluti framleiðslu Hampiðjunnar var fluttur til Litháen í ársbyrjun 2004 og Axapta tekið í notkun þar samtímis.
„Axapta er fjölþjóðlegt kerfi, það er hægt að setja það upp í næstum hvaða landi sem er og við höf
um sett það upp í Bandaríkjunum, Noregi, Litháen og á Íslandi. Það ræður við mismunandi skattaumhverfi og býður líka upp á mörg tungumál, allt eftir því í hvaða landi starfsemin er. Staðsetning er því engin fyrirstaða og það gerir starfsmönnum okkar kleift að vinna í sama kerfinu á milli landa. Slíkt fyrirkomulag hjálpar okkur gríðarlega og af því hlýst vinnusparnaður. Axapta er ein lykilástæða þess að Hampiðjan getur starfað sem ein heild þó að starfsemin sé dreifð víða um heim. Kerfið er mjög sveigjanlegt í allri vinnslu og heldur vel utan um rekstur okkar og dótturfélaga okkar. Við höfum mjög góða reynslu af Axapta,“ segir Jón Oddur Davíðsson, forstöðumaður upplýsinga- og tölvumála hjá Hampiðjunni.
Mjög margar kerfiseiningar Axapta eru í notkun hjá Hampiðjunni, meðal annars. Framleiðslukerfi, Áætlanakerfi, Verkbókhald, Vinnusalarstjórnun og Millifyrirtækjasala. Framleiðsla Hampiðjunnar er viðamikil og því mikilvægt að kerfin sem notuð eru í framleiðsluferlinu séu nákvæm og áreiðanleg. „Framleiðslu- og Áætlanakerfi Axapta gera alla verkstýringu þægilega, auðvelt er að skipuleggja framleiðslu og innkaup, raða vinnslum niður á vélar og skipuleggja.“
Hampiðjan tók OWAS-vöruhúsakerfi HugarAx í notkun í Litháen árið 2007 og um síðustu áramót var OWAS einnig tekið í notkun hérlendis. „Handtölvulausnin í OWAS er beintengd við Axapta, sem tryggir hraða og örugga afgreiðslu. Starfsfólk í vöruhúsum okkar hefur verið mjög fljótt að tileinka sér OWAS.“ „Samstarfið við HugAx er mjög gott og hefur gengið vel í gegnum árin. Við getum gengið að því vísu að fá úrlausn mála hratt og örugglega,“ segir Jón Oddur að lokum.
Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.
Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri
Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur
Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur
Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur