HugurAx

Spurningar og svör

Afhverju að velja TOK?

Í þessu ótrausta efnahagslega ástandi er TOK arðbærari fjárfesting en nokkru sinni fyrr. Lausnirnar okkar eru þannig uppbyggðar að þær eru sveigjanlegar og hægt er að raða saman einingum TOK á nákvæmlega þann hátt sem hentar þínu fyrirtæki best.

Hvernig veit ég hvaða kerfi ég þarf?

Við viljum að þú veljir hvorki of lítið kerfi né of stórt.  Markmiðið er alltaf að velja rétta kerfið fyrir þína starfsemi.  Það þýðir að stundum bendum við viðskiptavinum okkar á að velja minna kerfi, þar sem það er besta lausnin fyrir einmitt það fyrirtæki.

Ef ég kaupi bókhaldskerfi núna, - get ég uppfært það seinna í stærra kerfi?

Já, þú getur alltaf uppfært í stærra kerfi þegar að því kemur.  Við tökum einfaldlega hitt kerfið upp í. TOK vex með þér og þínum rekstri.

Er hægt að nota TOK með öðrum kerfum eins og t.d. kassakerfum?

Já, hægt er að nota TOK bókhaldskerfin með kassakerfunum Posis, Centara, Ebenezer, LS pos og MerkurPos.

Hvernig læri ég að nota TOK?

Með öllum kerfunum fylgir greinargóð handbók á íslensku. Inn í kerfið eru innbyggðir hjálparhappar sem gera notendum kleift að sækja sér upplýsingar og leiðbeiningar þar sem þeir eru staddir í kerfinu hverju sinni. Þessi möguleiki kemur sér mjög vel þegar fólk er að nota kerfið, en reglulega er bætt við býjum hnöppum.  Einnig bjóðum við upp á námskeið í notkun kerfanna.
Hvaða stýrikerfi þarf til að keyra TOK?

Við mælum með Windows XP eða vista fyrir nýjustu útgáfurnar af TOK.

Verð ég að kunna að færa bókhald til að geta notað TOK?

Bókhaldskerfi geta aldrei gert allt, enda þarft þú að geta fært inn fylgiskjöl. Ákveðin grunnþekking er því nauðsynleg.  Ráðgjafar okkar geta aðstoðað við að kenna á kerfin.

Er hægt að vera með fleiri en einn notanda inn í TOK í einu?

Já, þú kaupir einfaldlega leyfi fyrir fleiri notendur.

Er erfitt að nota TOK?

Nei, meginmarkmið allrar þróunar á TOK er að gera vinnu við bókhald einfalda og þægilega.

Færa bókhaldið sjálfur eða kaupa aðstoð við bókhaldið ?

Allir sem byrja með fyrirtæki komast mjög hratt á þann tímapunkt að þurfa að taka þessa ákvörðun, það eru kostir og gallar við hvoru tveggja. Hvað þú átt að velja fer algerlega eftir því hvernig þinn rekstur er. Lítil fyrirtæki sem þurfa reikningagerð og eru með einfalt bókhald ættu að geta fært sitt bókhald sjálfir. Fái maður bara smá aðstoð við að komast í gang og smá aðstoð við ársuppgjörið, er þetta öflugur máti að skipuleggja bókhaldið hjá sér.

Kynntu þér bókhaldsþjónustu TOK við komum þér af stað, getum séð um þetta fyrir þig eða hreinlega bara skilað ársuppgjöri allt eins og hentar þínum rekstri best.

Hvað geri ég ef ég lendi í vandræðum?

Þjónustudeild okkar er ætíð tilbúin að liðsinna þér ef þú lendir í einhverjum vandræðum.  Hægt er að hafa samband við okkur í síma, með faxi eða tölvupósti með fyrirspurnir um allt frá því hvernig setja á TOK upp yfir í hvernig kerfin virka.

Tengiliður

Sigrún Eir Héðinsdóttir

sigruneir[hja]advania.is

545 1000

Tengdar vörur

TOK Laun

Sparar tíma og auðveldar vinnu við launaútreikning, gerð skilagreina og afstemmingar.



Bakvörður

Tímaskráningar, viðveruskráningar og verkskráningar - Bakvörður leysir þarfir fyrirtækja á þessu sviði.

 

Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík, tölvupóstfang 
Sími 545 1000, Fax 545 1001, Kt. 630896-3049
Vefstjóri

Staðsetningar

Staðsetning Reykjavík

Staðsetning
í Reykjavík Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
á Akureyri Tölvupóstur

Staðsetning

Staðsetning
í Vestmannae. Tölvupóstur

VIÐURKENNINGAR